Veisluthonusta
Um árabil hefur Bautinn rekið umfangsmikla veisluþjónustu. Allt frá litlum veislum til mjög fjölmennra, um 1200 manna. Stærri veislur hafa oftast verið haldnar í íþróttahúsum og hefur Bautinn komið sér upp góðum búnaði til að gera þar glæsilega veislusali sem og í öðru stóru húsnæði.

Flestar stærri veislur hafa verið í íþróttahöllinni á Akureyri en einnig hefur Bautinn séð um veislur víða um land, s.s. 500 manna hátíð á Neskaupsstað, 600 manna afmælishátíð Breiðabliks í Smáranum í Kópavogi, 700 manna vígslu og afmælishátíð á Ásvöllum í Hafnarfirði og ársþing Í.S.Í. á sama stað.

Einnig hefur Bautinn séð um ráðstefnur, stórar og smáar, s.s. A.S.Í. þing, Samband íslenskra sveitafélaga, Samorkuþing svo dæmi séu nefnd.

Guðmundur Karl Tryggvason
Rekstrarstjóri

 

 

 

Matsedlar Fyrirtaekid Myndir Postur Forsida Salir